Volodimír Selenskí Úkraínuforseti telur að Rússar eigi eftir að herða sókn sína í norðausturhluta Úkraínu. Hann segir einnig að Úkraínumenn hafi aðeins fjórðung af þeim loftvörnum sem herinn þurfi til að vera á pari við innrásarlið Rússa.
Þetta kemur fram í viðtali Selenskís við AFP-fréttaveituna.
Rússneskar hersveitir hófu óvænta árás á Karkív-hérað 10. maí sem hefur skilað þeim mestu landvinningum í Úkraínu í eitt og hálft ár.
„Ég segi ekki að þetta hafi verið mikill árangur [fyrir Rússa] en við verðum að halda einbeitingu og vera undirbúin fyrir það að þeir séu að færa sig lengra inn á landsvæði okkar,“ segir hann.
Rússneskar hersveitir í Úkraínu hafa sölsað undir sig 278 ferkílómetra landsvæði síðan þær settu aukinn kraft í hernað sinn í norðausturhluta Karkív-héraðs og í suðurhluta landsins, samkvæmt útreikningum AFP út frá gögnum frá stofnun sem rannsakar hernað, Institute for the Study of War (ISW).
Selenskí ítrekaði beiðni til bandamanna um að senda fleiri loftvarnarkerfi og orrustuþotur til að berjast gegn yfirburðum Rússlands í lofti.
„Í dag höfum við um 25 prósent af því sem við þurfum til að verja Úkraínu. Ég er að tala um loftvarnir,“ sagði hann.
Úkraína þurfi 120-130 F-16 orrustuþotur eða aðrar háþróaðar flugvélar til viðbótar.