Sogast KA enn neðar í fallbaráttuna?

Almarr Ormarsson og félagar í KA hafa tapað þremur leikjum …
Almarr Ormarsson og félagar í KA hafa tapað þremur leikjum í röð. mbl.is/Arnþór

Einn leikur er á dagskrá í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í dag þegar nýliðar HK taka á móti KA-mönnum í Kórnum, en leikurinn hefst klukkan 17.

KA-menn byrjuðu tímabilið af krafti en hafa átt í erfiðleikum að undanförnu og tapað þremur leikjum í röð. Þeir eru nú með 12 stig í níunda sætinu, aðeins stigi meira en HK sem er með jafn mörg stig og Víkingur í 10. og 11. sæti.

HK, sem vann Breiðablik í síðasta leik, getur þar af leiðandi komist upp fyrir KA-menn með sigri og farið alla leið upp í áttunda sætið og komið Norðanmönnum í mikil vandræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert