Meiddist á ökkla gegn Val

Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Patrick Pedersen.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Patrick Pedersen. mbl.is/Árni Sæberg

Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leikmaður Íslandsmeistara KR, meiddist í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu í gærkvöldi. 

Á vef Fréttablaðsins er haft eftir Rúnari Kristinssyni, þjálfara KR, að liðband í ökkla hafi tognað. 

Arnór verður því frá næstu vikurnar en ekki er um að ræða meiðsli sem koma í veg fyrir að hann verði leikfær þegar Íslandsmótið hefst í lok apríl. 

Nokkrir leikmenn eru á sjúkralistanum hjá KR eins og fram hefur komið. Finnur Tómas Pálmason fótbrotnaði í vetur, Emil Ásmundsson sleit krossband og Alex Freyr Hilmarsson sleit krossband síðasta sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert