Tindastóll þarf aðeins tvo sigra í síðustu fjórum leikjum sínum í Lengjudeild kvenna í fótbolta til að tryggja sér sæti í efstu deild.
Tindastóll hafði betur gegn ÍA á heimavelli í dag, 2:0. Aldís María Jóhannsdóttir kom Tindastóli yfir á 35. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0. Sú staða breyttist í 2:0 þegar Jacqueline Altschuld tvöfaldaði forskotið á 77. mínútu og þar við sat.
Skagfirðingar eru í toppsætinu með 37 stig, fjórum stigum meira en Keflavík í öðru sæti og ellefu stigum meira en Haukar í þriðja sæti, en Haukar eiga leik til góða.