Mörkin: City keyrði yfir Chelsea í fyrri hálfleik

Manchester City skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik þegar liðið heimsótti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Leiknum lauk með 3:1-sigri City en Ilkay Gündogan kom City yfir strax á 18. mínútu með skoti utan teigs.

Phil Foden bætti við öðru marki City, þremur mínútum síðar, og það var svo Kevin De Bruyne sem skoraði þriðja markið af stuttu færi úr teignum á 34. mínútu.

Callum Hudson-Odoi minnkaði muninn fyrir Chelsea með marki í uppbótartíma eftir að hafa komið inn á sem varamaður en lengra komust leikmenn Chelsea ekki.

Leikur Chelsea og Manchester City var sýndur beint á Síminn Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert