Borgar United 70 milljónir punda?

Dusan Vlahovic gæti verið á leið til Englands.
Dusan Vlahovic gæti verið á leið til Englands. AFP/Cristina Quicler

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United eru sagðir undirbúa tilboð í serbneska framherjann Dusan Vlahovic.

Það er Football Transfers sem greinir frá þessu en Serbinn, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Juventus á Ítalíu.

Framherjinn hefur áður greint frá því að hann vilji spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en hann kostar í kringum 70 milljónir punda.

Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea að undanförnu en hann skoraði tíu mörk í 26 leikjum í ítölsku A-deildinni á tímabilinu.

Hann hefur einnig leikið með Fiorentina á Ítalíu, á árunum 2018 til 2022, en alls hefur hann skorað 61 mark í 139 leikjum í ítölsku A-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert