Elliott var örlagavaldur í Lundúnum

Li­verpool tyllti sér á topp ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar með 2:1-seiglu­sigri á Crystal Place á Sel­hurst Park í Lund­ún­um í dag.

Crystal Palace skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu í seinni hálfleik eftir að Andrew Madley dómari var sendur í skjáinn.

Harvey Elliott kom inn á sem varamaður fyrir Liverpool og reyndist örlagavaldur. Hann fiskaði Andre Ayew út af áður en Salah jafnaði metin og rak svo smiðshöggið sjálfur með góðu langskoti.

Mörkin úr leiknum og helstu tilþrifin er að finna í spilaranum hér að ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert