Máluðu sig og spiluðu hryllingsleik í beinni

Olalitla og DiamondMynXx máluðu sig í beinni útsendingu og spiluðu …
Olalitla og DiamondMynXx máluðu sig í beinni útsendingu og spiluðu Phasmophobia. Skjáskot/Twitch/GameTíví

Annan hvern þriðjudag fær Móna Lind, einnig þekkt sem DiamondMynXx, úr streymisþættinum Queens til sín gest þar sem hún auk gestsins gera eitthvað sniðugt fyrir áhorfendur og spila saman tölvuleik í beinni útsendingu.

Efnishöfundurinn og tölvuleikjaspilarinn Óla Blöndal, einnig þekkt sem olalitla96, var gestur í nýjasta streymisþætti Queens en í þeim þætti máluðu stelpurnar sig sem Jókerinn og It áður en spilið hófst.

Spiluðu stelpurnar tölvuleikinn Phasmophobia en Óla hefur áður verið að streyma reglulega af þeim tölvuleik á sinni eigin streymisrás, olalitla96.

Hér að neðan má horfa á streymið í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert