Fleiri drottningar á GameTíví

Móna Lind, Valgerður og Rósa Björk fara með þáttinn Queens …
Móna Lind, Valgerður og Rósa Björk fara með þáttinn Queens í GameTíví. Grafík/GameTíví

Drottningunum á GameTíví fjölgar í kvöld þegar Móna Lind Krist­ins­dótt­ir og Val­gerður Kjart­ans­dótt­ir, einnig þekkt­ar sem Diamond­MynXx og VallaPjalla, kynna þriðju drottninguna til leiks.

Móna og Valgerður fara með þáttinn Queens, sem er sýndur á þriðjudögum á GameTíví, og hafa nú fengið til sín Rósu Björk, Queen of Goons, til þess að vera þriðja drottningin í þættinum.

Safnaði milljón krónum fyrir Píeta Samtökin

Rósa er enginn nýgræðlingur í streymisgeiranum en í byrjun árs styrkti hún Píeta Samtökin um meir en milljón krónur sem hún hafði safnað með sérstöku styrktarstreymi sem stóð yfir í heilan sólarhring.

Drottningarnar þrjár verða í beinni útsendingu í kvöld klukkan 21:00 á Twitch-rás GameTíví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert