Hvaða lið verður Íslandsmeistari?

Hvaða lið verður Íslandsmeistari?
Hvaða lið verður Íslandsmeistari? Skjáskot/RL

Úrslitakeppni Arena Deildarinnar hefst í kvöld.
Eftir frábært tímabil er komið að því sem allir áhorfendur og spilarar hafa beðið spenntir eftir.

Sex lið taka þátt í úrslitakeppninni og leikin verður tvöföld útsláttarkeppni og viðureignirnar allar undir fyrirkomulaginu „BO7“ (e. Best of 7).

BO7 merkir að lið sem vinnur fjóra leiki kemst áfram, ef staðan er jöfn 3-3 er leikinn oddaleikur og sigurvegari fundinn í sjöunda leiknum.

Deildin gerð upp

Rocket League á Íslandi útbjó myndskeið þar sem deildin er gerð upp og áhorfendur búnir undir æsispennandi og skemmtilega úrslitakeppni

Leikið verður í dag, miðvikudag, og svo verður keppnin í beinni á laugardag og sunnudag þar sem spilarar verða í húsi og allir leikirnir sýndir í beinni á skjá í Arena.

Dagskrá kvöldsins:
18.40 - Breaking Sad gegn 354 Esports
19.20 - Þór gegn Pushin P
20.00 - Lava gegn sigurvegara fyrstu viðureignar
20.40 - Breiðablik gegn sigurvegara annarrar viðureignar

Leikjatré fyrir úrslitakeppnina.
Leikjatré fyrir úrslitakeppnina. Grafík/RLÍS

Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu í kvöld frá klukkan 18.30 á Twitch-síðu Rocket League á Íslandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert