Frægð Stjörnumanna fer víða (myndband)

Halldór Orri Björnsson stingur sér til sunds í einu fagni …
Halldór Orri Björnsson stingur sér til sunds í einu fagni Stjörnumanna í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frægð leikmanna  úrvalsdeildarliðs Stjörnunnar í knattspyrnu fer víða vegna óvenjulegra aðferða þeirra við að fagna mörkum. Í einhverjum vinsælasta fótboltatíma í frönsku sjónvarpi var sérstakt innslag með þeim þar sem fjallað er um þetta, með viðtölum við leikmenn, forráðamenn og sjálfa fegurðardrottningu Íslands.

                                                                    Brot úr þættinum, smellið HÉR

Þessi þáttur heitir Telefoot og er sýndur fyrir hádegi á sunnudögum, nokkurs konar magasín, á stærstu stöðinni, TF1. Þetta er vinsæll þáttur og allt þar vel gert og framreitt á áhugaverðan hátt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert