„Úrslitaleikir eru alltaf sérstakir en ég hefði frekar verið til í að mæta Manchester United,“ sagði Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, við spænska blaðamenn á fréttamannafundi í Madríd í dag.
Real Madrid mætir Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í Kiev næsta laugardag. Ronaldo fór til Real Madrid frá Manchester United á sínum tíma og á hann von á erfiðum leik.
„Liverpool á skilið að vera í úrslitum og þetta verður ekki auðveldur leikur. Liverpool minnir mig á Madrid fyrir nokkrum árum, sóknarmennirnir eru mjög snöggir, en okkar lið er betra. Við verðum að spila okkar leik og bera virðingu fyrir andstæðingnum,“ bætti Ronaldo við.