Zlatan skoraði í fjórða leiknum í röð

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði fyrir LA Galaxy í fjórða leiknum í röð þegar liðið gerði 1:1 jafntefli gegn Sporting Kansas í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt.

Zlatan hefur þar með skorað 21 mark á leiktíðinni en hann kom sínum mönnum með marki úr vítaspyrnu. LA Galaxy tapaði tveimur dýrmætum stigum með jafnteflinu en liðið er einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni þegar tveimur umferðum er ólokið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert