Wales. Golf. Real Madrid. Í þessari röð

Gareth Bale þakkar fyrir stuðninginn í gærkvöldi.
Gareth Bale þakkar fyrir stuðninginn í gærkvöldi. AFP

Áhugaleysi Gareth Bale fyrir því að vera í herbúðum Real Madrid er ekki vel geymt leyndarmál. Birtist það fólki enn einu sinni í fagnaðarlátum Wales-verja í gær en Wales tryggði sér þá sæti í lokakeppni EM. 

Í fagnaðarlátunum í gær voru leikmenn Wales, þar á meðal Bale, með fána í höndunum. Á hann var áletrað: „Wales. Golf. Real Madrid. Í þessari röð.“

Er þar vísað til ummæla Predrags Mijatovic, fyrrverandi leikmanns Real Madrid, þar sem hann gat sér til um forgangsröðina hjá Bale. Féllu ummælin greinilega í kramið hjá stuðningsmönnum Wales sem ekki hafa einungis útbúið fána og boli með ummælunum heldur hafa þeir einnig búið til söngtexta. 

Bale viðurkenndi í samtölum við blaðamenn að hann hefði gaman að uppátæki stuðningsmannanna en nú vaknar sú spurning hvort vinnuveitendur hans hjá Real Madrid hafi húmor fyrir þessu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert