Á skotskónum í Kasakstan

Rúnar Már Sigurjónsson í leik með Astana.
Rúnar Már Sigurjónsson í leik með Astana. Ljósmynd/Astana

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði eina mark Astana þegar liðið fékk Kaspyi Aktau í heimsókn í efstu deild Kasakstan í knattspyrnu í dag.

Leiknum lauk með 2:1-sigri Kaspyi Aktau en Rúnar Már kom Astana yfir á 37. mínútu áður en þeir Billal Sebaihi og Maksym Marusich skoraði tvívegis fyrir Kaspyi Aktau í síðari hálfleik.

Þetta var sjötta mark Rúnars á tímabilinu en hann er næst markahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Joao Paulo, leikmanni Ordabasy.

Astana er með 21 stig í öðru sæti deildarinnar eftir ellefu umferðir, fimm stigum minna en topplið Kairat Almaty.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert