Missir Messi af leiknum gegn City?

Lionel Messi og Mauricio Pochettino þegar Messi var tekinn af …
Lionel Messi og Mauricio Pochettino þegar Messi var tekinn af velli gegn Lyon. AFP

Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri París Saint-Germain segir Lionel Messi ekki hafa verið skipt út af að ástæðulausu í leik Parísar gegn Lyon á sunnudag. 

Þegar Messi fór af leikvelli þótti ýmsum fjölmiðlamönnum sem Argentínumaðurinn væri óánægður með að vera tekinn af leikvelli. 

Pochettino segir hins vegar að Messi hafi fengið högg á vinstra hnéð í leiknum. Nú er ljóst að Messi fór ekki með Parísarliðinu til Metz en liðin mætast á morgun í deildarleik. 

Í næstu viku leikur París gegn Manchester City í Meistaradeildinni og er því óljóst hvort Messi verði þá leikfær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert