Átti í ástarsambandi við mun yngri leikmann

Wille Kirk átti í ástarsambandi við leikmann.
Wille Kirk átti í ástarsambandi við leikmann. Ljósmynd/Leicester City

Enska knattspyrnufélagið Leicester City hefur sett Wille Kirk til hliðar tímabundið hið minnsta en hann er þjálfari kvennaliðs félagsins. Ástæðan er ástarsamband við töluvert yngri leikmann liðsins. 

The Guardian greinir frá að Kirk, sem er 45 ára, hafi átt í ástarsambandi við leikmanninn í nokkurn tíma. 

Aðeins örfáar vikur eru síðan Jonathan Morgan fékk reisupassann hjá Sheffield United fyrir samband við 17 ára leikmann.

Skotinn Kirk þjálfaði kvennalið Bristol City áður en hann varð aðstoðarþjálfari kvennaliðs Manchester United. Hann var svo í þrjú ár hjá kvennaliði Everton, áður en hann tók við Leicester.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert