„Það gætu verið börn að horfa“

Úr leik Rosenborg og FH sumarið 2021.
Úr leik Rosenborg og FH sumarið 2021. mbl.is/Arnþór Birkisson

Norski knattspyrnumaðurinn Ole Sæter, leikmaður Rosenborg, vakti athygli fyrir svör sín í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV 2 Sport eftir að hann skoraði stórglæsilegt mark í 2:0-sigri á Sandefjord í úrvalsdeildinni í gær.

Beðinn um að fara yfir markið sitt, þar sem Sæter skoraði með þrumufleyg af mjög löngu færi sagði hann:

„Ég man ekki mikið eftir þessu þannig að ég ætla heim, þar sem ég verð með farsímann í vinstri hendi og liminn í hægri hendi. Ég ætla að hafa það náðugt. Þetta verður langt kvöld.“

Sæter í viðtalinu.
Sæter í viðtalinu. Ljósmynd/Skjáskot

Spyrlinum virtist nokkuð brugðið yfir þessum miklu og persónulegu upplýsingum og sagði við Sæter:

„Það er kannski rétt að minna þig á að það gætu verið börn að horfa. Þetta er fínt Ole.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert