Ísak skoraði í sigri

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði annað mark Düsseldorf í dag.
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði annað mark Düsseldorf í dag. Ljósmynd/Düsseldorf

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði í 2:0 sigri Düsseldorf á Wehen Wiesbaden á útivelli í þýsku B-deild karla í knatt­spyrnu í dag.

Ísak var í byrjunarliði og skoraði annað mark leiksins sem kom á 64. mínútu eftir stoðsendingu frá Shinta Karl Appelkamp og var svo skipt út af mínútu síðar.

Düsseldorf er í þriðja sæti deildarinnar með 52 stig þegar fimm umferðir eru eftir og kæmist í því sæti í umspil um sæti í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert