Gæti misst af EM í sumar

Hlúð að Lucas Hernandez á vellinum í Dortmund í gærkvöld.
Hlúð að Lucas Hernandez á vellinum í Dortmund í gærkvöld. AFP/Ina Fassbender

Franski knattspyrnumaðurinn Lucas Hernandez gæti misst af Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar eftir að hafa meiðst í leik París SG og Dortmund í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöld.

Hernandez fór af velli, meiddur á hné, undir lok fyrri hálfleiks, skömmu eftir að Niclas Füllkrug skoraði markið sem skildi liðin að í þessari fyrri viðureign liðanna.

Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru en Evrópukeppnin hefst eftir aðeins sex vikur þannig að tíminn er skammur fyrir varnarmanninn öfluga sem hefur leikið 37 landsleiki fyrir Frakkland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert