Andrés Páll keppir um verðlaun

Andrés Páll Júlíusson.
Andrés Páll Júlíusson. Ljósmynd/Keilusamband Íslands

Núna er liðskeppnum lokið á EM karlalandsliða í keilu en keppt er í München í Þýskalandi. Rétt í þessu lauk keppni fimm manna liða og endaði íslenska liðið í 13. sæti af 31.

Á morgun hefst keppni 24 meðaltalshæstu leikmanna mótsins og náði Andrés Páll Júlíusson, ÍR, 22. sætinu af alls 187 keppendum. Hann mun því keppa um aðaleinstaklingsverðlaun mótsins, en 24 efstu keilararnir gera það.

Arnar Davíð Jónsson, sem á tíma var einnig meðal 24 efstu, seig aðeins niður töfluna síðustu daga og endaði í 29. sæti með 4.843 pinna eftir 24 leiki og vantaði aðeins 30 pinna til að halda sér uppi meðal 24 efstu.

Árangur Íslands á mótinu var þessi:

Einstaklingskeppni – Fyrsta keppni mótsins:

26. sæti Arnar Davíð Jónsson KFR /Höganas
49. sæti Andrés Páll Júlíusson ÍR
50. sæti Jón Ingi Ragnarsson KFR/BK Brio
72. sæti Gústaf Smári Björnsson KFR
120. sæti Einar Már Björnsson ÍR
125. sæti Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR

Tvímenningur

6. sæti Ísland 3: Arnar Davíð og Jón Ingi
45. sæti Ísland 2: Andrés Páll og Gústaf Smári
49. sæti Ísland 1: Einar Már og Gunnar Þór

Þrímenningur

20. sæti Ísland 2: Arnar Davíð, Andrés Páll og Jón Ingi
24. sæti Ísland 1: Einar Már, Gunnar Þór og Gústaf Smári

Liðakeppni 5 manna

13. sæti Arnar Davíð, Andrés Páll, Gunnar Þór, Einar Már og Jón Ingi

All Events (allir leikir leikmanna lagðir saman):

22. sæti Andrés Páll Júlíusson
29. sæti Arnar Davíð Jónsson
59. sæti Jón Ingi Ragnarsson
92. sæti Gústaf Smári Björnsson
100. sæti Gunnar Þór Ásgeirsson
113. sæti Einar Már Björnsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert