Keilumaðurinn Arnar Davíð Jónsson endaði í 7.-8. sæti á Brunswick Ballmaster Open-mótinu, en það er fyrsta mótið sem fremsti keilumaður landsins tekur þátt í á nýju ári.
Arnar Davíð skilaði frábæru skori í undankeppninni, sem skilaði honum í úrslitaskref tvö þar sem hann spilaði sig áfram í skref þrjú. Þar var hann hársbreidd frá því að komast í undanúrslit. Arnar fór ekki tómhentur heim því hann fékk 3.000 evrur í verðlaunafé.
Andrés Páll Júlísson, Einar Már Björnsson, Guðjón Júlíusson, Gunnar Þór Ásgeirsson, Gústaf Smári Björnsson og Marika Lönnroth tóku einnig þátt á mótinu en ekkert þeirra fór áfram úr undankeppni mótsins.