Íþróttaiðkun nú án takmarkana

Íslenska kvennalandsliðið við æfingar á Laugardalsvelli.
Íslenska kvennalandsliðið við æfingar á Laugardalsvelli. /Hari

Íþróttaiðkun allra aldurshópa í landinu má nú fara fram án takmarkana samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Áfram verða hins vegar fjöldatakmarkanir á íþróttaviðburðum til 21. júní hið minnsta.

Allt að 200 einstaklingar mega koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum, og því verða til að mynda miklar takmarkanir á aðgengi áhorfenda á íþróttaviðburði. 

Frétt heilbrigðisráðuneytisins um málið má lesa í heild sinni með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert