Hafa miklar áhyggjur af unglingum

Æfingar hjá unglingum og ungmennum hafa legið niðri undanfarnar vikur …
Æfingar hjá unglingum og ungmennum hafa legið niðri undanfarnar vikur vegna kórónuveirufaraldursins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íþróttahéruð á Íslandi hafa biðlað til stjórnvalda um að endurskoða afstöðu sína þegar kemur að æfingabanni fyrir unglinga á framhaldsskólaaldri.

Samkvæmt nýjustu sóttvarnareglum sem tóku gildi gær má afreksíþróttafólk og fólk í meistaraflokkum efstu og næstefstu deildar nú æfa eftir tæplega tveggja mánaða hlé.

Unglingar á framhaldsskólaaldri þurfa hins vegar að bíða enn frekar en æfingar hafa legið niðri hjá þessum aldurshópi undanfarnar vikur.

Yfirlýsingin barst stjórnvöldum í gær en hana má sjá hér fyrir neðan.

Íþróttahreyfingin fagnar þeim tilslökunum sem gerðar eru í nýrri reglugerð um íþróttastarf en lýsir þungum áhyggjum af unglingunum á framhaldsskólaaldri. Þessi hópur virðist hafa gleymst þegar kemur að útfærslu á takmörkunum hverju sinni.


Raddir unga fólksins okkar eru því miður of fáar og þegar við getum ekki hvatt þau til íþróttaiðkunar í jafn langan tíma og raun ber vitni þá höfum við miklar áhyggjur af brottfalli þeirra sem myndi auka líkur á frávikshegðun með tilheyrandi vandamálum.


Íþróttahéruðin hvetja stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína til þessa viðkvæma hóps í þeim afléttingum sem nú þegar eru samþykktar og hleypa fyrrnefndum aldurshópi inn í íþrótta- og æskulýðsstarf á ný, með og án snertinga og með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda fyrir íþróttastarf.

Íþróttakveðja,

Héraðassambandið Hrafnaflóki
Héraðssamband Bolungarvíkur
Héraðssambandið Skarphéðinn
Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Vestfirðinga
Héraðssamband Þingeyinga
Íþróttabandalag Akraness
Íþróttabandalag Akureyrar
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar
Íþróttabandalag Reykjavíkur
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Íþróttabandalag Suðurnesja
Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar
Ungmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalarnesþings
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Ungmennasambandið Úlfljótur
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga
Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert