Fyrsti sigur Tékkans

Barboru Krejcikovu þykir vænt um verðlaunagripinn.
Barboru Krejcikovu þykir vænt um verðlaunagripinn. AFP

Hin tékkneska Barbora Krejcikova vann sitt fyrsta risamót í tennis er hún hafði betur gegn Anastacia Pavlyuchenkova frá Rússlandi í úrslitaleik Opna franska meistaramótsins í gær. 

Hvorug þeirra hafði unnið risamót áður og var ljóst að nýtt nafn færi á bikarinn. Krejcikova, sem er 25 ára, vann í þremur settum; 6:1, 2:6 og 6:4. 

Novak Djokovic frá Serbíu og Grikkinn Stefanos Tsitsipas mætast í úrslitum í karlaflokki í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert