Ein sú besta ekki með á Wimbledon

Naomi Osaka verður ekki með á einu stærsta móti tímabilsins.
Naomi Osaka verður ekki með á einu stærsta móti tímabilsins. AFP

Japanska tenniskonan Naomi Osaka verður ekki með á Wimbledon-mótinu sem hefst 29. júní í Wimbledon á Englandi. Þetta tilkynnti hún á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Osaka, sem er í öðru sæti heimslistans, dró sig úr keppni á Opna franska meistaramótinu á dögunum og gaf þá út að hún ætlaði sér að taka sér frí frá keppni í óákveðinn tíma.

Þrátt fyrir að Osaka verði ekki með á Wimbledon-mótinu ætlar hún sér að taka þátt á Ólympíuleikunum í Tókýó sem hefjast í júlí en Osaka verður á heimavelli á leikunum.

Osaka er önnur tennisstjarnan sem dregur sig úr leik á Wimbledon-mótinu en í gær tilkynnti Rafael Nadal að hann yrði ekki með í Wimbledon, né á Ólympíuleikunum í Tókýó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert