Írski kylfingurinn Shane Lowry mun taka stórt stökk þegar næsti heimslisti í golfi verður kynntur eftir helgi.
Lowry vann sitt fyrsta risamót í dag þegar hann fagnaði sigri á hinu sögufræga The Open-meistaramóti, en hann vann það með sex högga forskoti. Fyrir mótið var hann í 33. sæti heimslistans en mun sitja í því 17. á nýjum lista.
Lowry mun aldrei hafa komist svo ofarlega áður á ferlinum, en hæst komst hann í 18. sætið árið 2016. Hann hefur hins vegar tekið dýfu eftir það og var til að mynda í 75. sæti á listanum undir lok síðasta árs.