„Spila á PGA-mótaröðinni út ferilinn“

Rory McIlroy.
Rory McIlroy. AFP/Warren Little

Norðurírski kylfingurinn segir orðróm um að honum hafi boðist að skipta frá PGA-mótaröðinni til hinnar umdeildu LIV-mótaraðar vera víðs fjarri sannleikanum.

„Ég veit ekki hvernig svona hlutir byrja. Mér hefur aldrei verið boðin upphæð frá LIV og ég hef aldrei íhugað að skipta til LIV.

Ég tel mig hafa gert það ljóst undanfarin tvö ár að það sé ekki eitthvað fyrir mig,“ sagði McIlroy í samtali við sjónvarpsstöðina Golf Channel.

„Hvað mig varðar liggur framtíð mín hér á PGA-mótaröðinni og það hefur aldrei verið neitt öðruvísi. [É]g mun spila á PGA-mótaröðinni út feril minn,“ bætti hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert