Florentina leikur sinn fyrsta landsleik

Florentina Stanciu í fyrsta landsleik
Florentina Stanciu í fyrsta landsleik mbl.is/Ómar

Florentina Stanciu, markvörður, sem fékk íslenskan ríkisborgararétt á dögunum leikur sinn fyrsta landsleik með íslenska landsliðinu í handknattleik þegar það mætir landsliði Svía í vináttulandsleik í íþróttahúsinu við Austurberg kl. 13.30.

Florentina á að baki á annan tug landsleikja fyrir Rúmena. Hún hefur hinsvegar ekki leikið með rúmenska landsliðinu í rúm þrjú ár og er þar með gjaldgeng strax með íslenska landsliðinu. Florentina hefur búið hér á landi í átta ár og leikur nú með ÍBV en hún var um nokkurra ára skeið markvörður Stjörnunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert