Leikmenn og dómarar greiddu aðgangseyri

Hreiðar Levý Guðmundsson, markvörður Gróttu, með bol til styrktar Fanneyju …
Hreiðar Levý Guðmundsson, markvörður Gróttu, með bol til styrktar Fanneyju og Ragnari fyrir leik í dag. Ljósmynd/Twitter-síða KA

Mikill samhugur ríkir í KA-heimilinu á Akureyri í kvöld jafnvel þótt þar fari fram íþróttakappleikur. Allur aðgangseyrir rennur nefnilega í gott málefni.

KA og Grótta mætast í Olísdeild karla klukkan 19.30, en allur ágóði rennur til hjónanna Fanneyjar Eiríksdóttur og Ragnars Snæs Njálssonar og barna þeirra. Fanney greindist nýverið með leghálskrabbamein, þá ólétt af öðru barni þeirra.

Leikmenn KA, gestaliðs Gróttu og dómarar leiksins greiddu aðgangseyri inn á leikinn og sýna því sannarlega samhug í verki.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert