Bíð í ofvæni eftir leik kvöldsins

Leikmenn Vals fagna deildarmeistaratitlinum í byrjun mánaðarins.
Leikmenn Vals fagna deildarmeistaratitlinum í byrjun mánaðarins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Líkt og flestir íþróttaáhugamenn bíð ég í ofvæni eftir leik Vals og þýska liðsins Göppingen í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik, sem fer fram á Hlíðarenda í kvöld.

Ljóst er að um stærðarinnar prófraun verður að ræða fyrir Íslandsmeistarana enda Göppingen eitt af 18 liðum í sterkustu deild heims.

Liðið gerði á laugardag jafntefli við Flensburg, sem var einmitt með Val í riðli í Evrópudeildinni og vann báða leikina, þar sem Valsmenn stóðu þó vel í þýska stórliðinu.

Göppingen hefur yfir fjölda toppleikmanna að skipa en hefur hins vegar ekki gengið nægilega vel í þýsku 1. deildinni á yfirstandandi tímabili, enda aðeins með 14 stig í 15. sæti eftir 23 leiki.

Bakvörð Gunnars má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert