45 mörk í síðustu fjórum leikjum

Hákon Daði Styrmisson átti flottan leik.
Hákon Daði Styrmisson átti flottan leik. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson átti góðan leik fyrir Hagen er liðið vann Hamm-Westfalen í þýsku B-deildinni í handknattleik í gær. 

Hagen vann leikinn 36:34 en Hákon Daði skoraði sjö mörk og var markahæsti maður leiksins. 

Hákon er þar með kominn með 45 mörk í síðustu fjórum leikjum.

Hagen er í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Hamm í þriðja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert