Bosníski handknattleiksmarkvörðurinn Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV.
Jokanovic gekk til liðs ÍBV sumarið 2019 og er því á sínu fimmta tímabili í Vestmannaeyjum.
Á síðasta ári varð hann Íslandsmeistari með ÍBV auk þess að verða bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili í mars árið 2020.
ÍBV á fyrir höndum undanúrslitaeinvígi gegn deildarmeisturum FH í úrslitakeppni Íslandsmótsins.