Sigvaldi og félagar í undanúrslit

Sigvaldi Björn Guðjónsson í leik með Kolstad.
Sigvaldi Björn Guðjónsson í leik með Kolstad. Ljósmynd/EHF

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, og liðsfélagar hans í Kolstad tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar um norska meistaratitilinn með því að leggja Halden að velli, 26:23, í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum.

Kolstad vann þar með einvígið 2:0 og er fyrsta liðið sem tryggir sér farseðilinn í undanúrslit.

Sigvaldi Björn skoraði þrjú mörk fyrir ríkjandi Noregsmeistara Kolstad í leik dagsins og var þriðji markahæstur í liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert