Jesus og Telles hafa lokið keppni

Gabriel Jesus í baráttunni við Christopher Wooh, leikmann Kamerún í …
Gabriel Jesus í baráttunni við Christopher Wooh, leikmann Kamerún í gær. Hann verður ekki meira með á HM í Katar. AFP/Issouf Sanogo

Gabriel Jesus, sóknarmaður Brasilíu og Alex Telles, varnarmaður liðsins verða ekki meira með á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar eftir að hafa meiðst í leik Brasilíu og Kamerún í lokaumferð G-riðils í gær.

Tilkynning þess efnis hefur verið birt á samfélagsmiðlum Knattspyrnusambands Brasilíu. Telles var tekinn af leikvelli á 54. mínútu leiksins og Jesus tíu mínútum síðar.

Brasilía mætir Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum á mánudag.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert