England og Frakkland leiða saman hesta sína í átta liða úrslitum á HM karla í fótbolta í Katar klukkan 19 annað kvöld.
Fyrirliðar liðanna, Harry Kane og Hugo Lloris, eru liðsfélagar hjá Tottenham og hafa verið í tæpan áratug.
„Hann er mjög viðkunnanlegur og einn besti leikmaður heims,“ sagði Kane á blaðamannafundi í dag. Hann segir þó lítinn vinskap að finna á milli þeirra á meðan á leiknum stendur.
„Í svona leik erum við ekki vinir og við munum gera allt hvað við getum til vinna,“ sagði Kane.