Umræðan getur verið vond og ljót á köflum

„Planið er ekki að gerast stjórnmálamaður eftir að ferlinum lýkur,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður ís­lenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.

Gísli Þorgeir, sem er 23 ára gamall, á ekki langt að sækja handboltahæfileikana en báðir foreldrar hans; þau Kristján Arason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, léku handbolta um árabil og þá er Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar í dag.

„Auðvitað hefur umræðan verið mismunandi í gegnum tíðina; bæði vond og ljót,“ sagði Gísli Þorgeir.

„Maður þarf að vera tilbúinn að blokka allt það neikvæða út og ef eitthvað er hefur þetta bara hvetjandi áhrif á mig,“ bætti Gísli Þorgeir við.

Gísli Þorgeir er í aðalhlutverki í sjötta þætti af Sonum Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir ofan eða inni á heimasíðu þáttanna sem má nálgast hér.

Kristján Arason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, foreldrar Gísla Þorgeirs Kristjánssonar.
Kristján Arason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, foreldrar Gísla Þorgeirs Kristjánssonar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert