SR vann fyrsta leikinn á Íslandsmótinu

Ómar Söndruson úr SR á fullri ferð með pökkinn í …
Ómar Söndruson úr SR á fullri ferð með pökkinn í leiknum í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Keppni hófst í kvöld í Hertz-deild karla í íshokkí þar sem Skautafélag Reykjavíkur og Björninn áttust við í Skautahöllinni í Laugardal.

Skautafélag Reykjavíkur hrósaði sigri, 3:2. Robbie Sigurðarson, Patrik Podsednicek og Sölvi Atlason skoruðu mörk Skautafélags Reykjavíkur og skoraði Sölvi sigurmarkið þegar tæp ein og hálf mínúta var eftir en Björninn var 2:1 yfir þegar skammt var eftir af leiknum. Ingþór Árnason og Andri Helgason skoruðu mörk Bjarnarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert