Við fórum bara að grenja

Þröstur Leó Jóhannsson er að öllu jöfnu ákveðinn leiðtogi í liði Keflavíkur í körfuknattleik þó svo að tölurnar segi kannski annað. Þröstur hvetur sitt lið áfram af dáð og lætur í sér heyra þegar til þarf. Þetta kvöldið dugði það skammt þegar Keflavík tapaði fyrir Stjörnunni, 92:81, í 10. umferð Dominos-deildar karla og Þröstur var vitanlega ósáttur með kvöldið.

Þröstur viðurkenndi góðfúslega að Stjörnumenn hafi einfaldlega verið betri þetta kvöldið, en rætt er við hann í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert