„Þetta var bara vont“

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, sagði sína menn hafa verið á eftir í öllu gegn Njarðvík í kvöld og að þessi fyrri hálfleikur liðsins hafi einfaldlega verið vondur. Njarðvík vann leik liðanna með yfirburðum, 85:67, í Dominos-deildinni í körfubolta.

Ingi sagði Njarðvíkinga einfaldlega hafa ýtt sínum mönnum út úr sínum aðgerðum en var nokkuð sáttur með þann neista sem liðið sýndi á lokasprettinum. Hvort 10 mínútur í viðbót hefðu dugað til að ná sigrinum gat Ingi ekki svarað en hann sagði sína menn þurfa að geta tengt betur saman frammistöður á milli leikja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert