Landsliðsmaður til Njarðvíkur

Njarðvík hefur borist liðstyrkur frá Austurríki.
Njarðvík hefur borist liðstyrkur frá Austurríki. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur komist að samkomulagi við austurríska landsliðsmanninn Carlos Novas Mateo um að leik mað karlaliðinu á komandi tímabili.

Mateo er 31 árs gamall framherji sem er 198 sentimetrar á hæð.

Hann á sjö A-landsleiki að baki fyrir Austurríki og hefur leikið í efstu deild í heimalandinu stærstan hluta ferilsins, síðast með liði GGMT Vienna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert