Tindastóll sterkari í fyrsta leik

Mammusu Secka og stöllur í Snæfelli eru lentar undir.
Mammusu Secka og stöllur í Snæfelli eru lentar undir. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Tindastóll er kominn í 1:0 í einvígi sínu gegn Snæfelli í umspili um sæti í efstu deild kvenna í körfubolta.

Skagfirðingar gerðu góða ferð í Stykkishólminn og unnu 82:73-sigur í fyrsta leik liðanna í dag. Snæfell endaði í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og Tindastóll í fjórða sæti 1. deildarinnar.

Tindastóll vann fyrstu þrjá leikhlutana og var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 63:53. Snæfell vann fjórða og síðasta leikhlutann 20:19 en það dugði skammt.

Ifunanya Okoro skoraði 25 stig fyrir Tindastól og Emese Vida 20. Shawnta Shaw skoraði 34 stig fyrir Snæfell en þau dugðu ekki til. Jasmina Jones gerði 11.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert