KR jafnaði og Tindastóll í góðum málum

Perla Jóhannsdóttir skoraði sjö stig fyrir KR.
Perla Jóhannsdóttir skoraði sjö stig fyrir KR. mbl.is/Kristinn Magnússon

KR jafnaði einvígi sitt við Aþenu í umspili um sæti í efstu deild kvenna í körfubolta með 76:75-heimasigri í Vesturbænum í kvöld. Aþena vann fyrsta leik einvígisins sannfærandi og er staðan nú 1:1.

Michaela Porter tryggði KR-ingum sætan sigur með tveimur stigum af vítalínunni í lokin. Hún skoraði 18 stig og tók 14 fráköst.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir gerði einnig 18 stig fyrir KR. Sianni Martin gerði 17 stig fyrir Aþenu og Dzana Crnac 16.

Tindastóll er kominn í 2:0 gegn Snæfelli eftir 75:60-heimasigur í kvöld. Snæfell endaði í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og Tindastóll í fjórða sæti 1. deildarinnar. Tindastóll vann fyrsta leikhlutann 24:8 og tókst Snæfelli ekki að jafna eftir það.

Ifunanya Okoro skoraði 17 stig fyrir Tindastól og þær Klara Sólveig Björgvinsdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir gerði 14 hvor. Shawnta Shaw skoraði 24 fyrir Snæfell.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert