Boston með besta árangurinn

Shai Gilgeous-Alexander er besti leikmaður OKC Thunder
Shai Gilgeous-Alexander er besti leikmaður OKC Thunder AFP/JOSHUA GATELEY

Boston Celtics lauk deildakeppninni í NBA-deildinni í körfuknattleik með besta árangur allra liða, hefur unnið 64 og einungis tapað 18 leikjum. New York Knicks er í 2. sæti Austurdeildarinnar.

Síðasta umferð deildarinnar fór fram í kvöld. New York skaust upp fyrir Milwaukee Bucks með eins stigs sigri á Chicago Bulls í Madison Square Garden, Jalen Brunson skoraði 40 stig fyrir heimamenn. Á sama tíma steinlá Milwaukee fyrir Orlando Magic.

Vestanmegin hafnar Oklahoma City Thunder í efsta sæti, meistarar Denver Nuggets í 2. sæti og Minnesota Timberwolves í 3. sæti.

Umspil úrslitakeppninnar hefst strax á þriðjudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert