Martin hársbreidd frá tvennunni

Martin Hermannsson lék vel í kvöld.
Martin Hermannsson lék vel í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, átti afar góðan leik fyrir Alba Berlín þegar liðið vann enn einn sigurinn í þýsku efstu deildinni í kvöld. Að þessu sinni lagði Alba Hamburg á útivelli, 84:76.

Alba er nú búið að vinna 11 leiki í röð í deildinni og er áfram í þriðja sæti með 21 sigur og fimm töp.

Martin lét vel til sína taka og var afar nálægt því að ná tvöfaldri tvennu þegar hann skoraði 12 stig, tók fjögur fráköst og gaf níu stoðsendingar á 26 og hálfri mínútu í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert