Góðir gestgjafar í flóknum aðstæðum

AFP

Augu heimsins beinast nú að Japan vegna Ólympíuleikanna, sem settir verða á morgun, föstudag. Keppendur eru nú, ásamt fylgdarliði, komnir austur til hins fjarlæga lands, þar sem kórónuveiran mallar nú af fullum þunga. Kunnugir lýsa málum sem svo að allur almenningur, ekki síst í Tókýó, þar sem ástandið er einna verst, hafi almennt miklar áhyggjur af stöðu mála.

„Auðvitað veldur það ugg meðal fólks að ofan í veiruna verði haldinn jafn risavaxinn viðburður og Ólympíuleikar og Ólympíumót fatlaðra síðan í kjölfarið. Leikarnir eru vissulega umdeildir, sem hefur birst í skoðanakönnunum sem benda til að andstaðan við leikana sé mikil,“ segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Tókýó.

„Að skipuleggja Ólympíuleika undir eðlilegum kringumstæðum er flókið verkefni, að ég tali ekki um við þær aðstæður sem nú ríkja,“ heldur Stefán áfram. „Sem betur fer eru Japanir gestgjafar undir þessum kringumstæðum. Fáum ef nokkrum er betur treystandi til að skipuleggja leikana við þessar gífulega flóknu aðstæður. Japanir eru einstaklega góðir skipuleggjendur; vinnusamir, nákvæmir, hjálpsamir og kurteisir. Nú sýnist mér meira að segja farið að bera meira á ólympíuandanum, það er að segja að fólk er í auknum mæli að sjá hið jákvæða í því sem fram undan er.“

Smitvarnir virka

Ráðgert er að 11.000 keppendur frá 200 löndum – auk þjálfara, fararstjóra og annars starfsfólks og svo fjölmiðlafólks – mæti á leikana. Gripið hefur verið til strangra ráðstafana og reglna með tilliti til smitvarna. Ólympíufararnir eru aðskildir strax á flugvellinum frá almennum farþegum, fara í sérfarartækjum inn á gististaði þar sem þeir eiga að hafast við uns að keppni kemur og þeir mega ekki fara út fyrir sín hólf né umgangast aðra.

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Japan.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Japan.

Nýsmitum Covid-19 í Japan hefur fjölgað dag frá degi frá því að síðasta neyðarástandi var aflétt í júní. Nú er svo komið að ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi í fjórða sinn í Tókýó og gildir sá stimpill fram til 8. ágúst.

„Hér er ströng grímuskylda fyrir alla og alls staðar eru sprittbrúsar og áminningar til fólks um að gæta að fjarlægðarmörkum og slíkt,“ segir Stefán Haukur. „Eigi að síður hafa komið upp smit innan ólympíuhópa og í ólympíuþorpinu. Um síðustu helgi voru greind 25 ný smit meðal ólympíufara, svo nú eru greindir alls 55 talsins. Þetta sýnir kannski betur en margt annað að smitvarnir þeirra virka og þeir sem greinast eru strax sendir í sóttkví eða einangrun. Þótt næstum allar keppnir verði án áhorfenda er ekki hægt að útiloka smit meðal þeirra sem komnir eru hingað.“

Landið lokað í raun

Stefán Haukur var í orlofi á Íslandi í sumar en hélt til Japans snemma nú í júlí, enda þarf mörgu að sinna vegna ÓL. Ferðin gekk vel en við komuna til Japans þurfti Stefán að skila neikvæðu PCR-prófi, fara í skimun og í tveggja vikna sóttkví.

„Í raun er Japan lokað fyrir erlendu fólki nema þú hafir hér varanlegan búseturétt eða sért að koma í tengslum við leikana. Álag á sjúkrahús hefur aukist að nýju vegna Covid-19-sjúklinga. Lunginn af nýsmitum er í Tókýó-héraði sem virðast drifin áfram af Delta-afbrigðinu. Auk þess ber á því að yngra fólk sé í auknum mæli að veikjast. Aðeins um fjórðungur þjóðarinnar hefur verið bólusettur að fullu, þá mest eldra fólk,“ segir Stefán Haukur.

Macron mætir og Friðrik krónprins

Flest ríki heimsins eru með sendiráð í Tókýó og í starfi þeirra að undanförnu hafa margvísleg verkefni vegna Ólympíuleikanna verið í forgangi. Um stöðu mála sé aflað góðra upplýsinga og þeim svo miðlað til heimalandanna. Margt sé þó óvissu háð, sem geri erfitt fyrir. Um undirbúning leikanna segir Stefán Haukur að sendiherrar Norðurlandaþjóðanna hafi átt sameiginlegan fund með ráðherranum sem er ábyrgur fyrir ÓL til að lýsa yfir stuðningi við japönsk stjórnvöld og fara yfir málin vítt og breitt. Vegna veirunnar munu næsta fáir ráðamenn eða þjóðhöfðingjar mæta til Tókýó. Þó er von á Macron forseta Frakklands, með vísan til þess að næstu leikar verða haldnir í París. Þá mætir Friðrik, krónprins Dana, en hann á sæti í alþjóðaólympíunefndinni. Aftur á móti verður lítið um viðburði eða samkomur í tengslum við leikana eins og oft hefur verið, svo sem samkomur með íþróttafólkinu.

Ólympíuhópurinn íslenski sem kom til Japans sl. helgi dvelst í bænum Tama City í Tókýó þar sem allur aðbúnaður er til fyrirmyndar. Stefán Haukur segist hafa verið í ágætu samstarfi við fólk þar og meðal annars haldið fyrirlestur um Ísland. Metnaður fólks í Tama gagnvart verkefninu sé mikill og þegar íslenski hópurinn mætti á áfangastað hafi móttökur þar verið góðar. Þá sé nú unnið að gerð yfirlýsingar milli sendiráðsins og þeirra sem ráða í bænum hvar gert er ráð fyrir kynningum og viðburðum tengdum Íslandi.

Fjórir Íslendingar eru meðal keppenda

• Heimsviðburður nú lágstemmdur Að þessu sinni eiga Íslendingar fjóra fulltrúa á ÓL í Tókýó. Anton Sveinn Mckee keppir í 200 metra bringusundi, Ásgeir Sigurgeirsson tekur þátt í keppni með loftskammbyssu, Guðni Valur Guðnason keppir í kringlukasti og Snæfríður Sól Jórunnardóttir í 100 og 200 metra skriðsundi. Íþróttafólkinu til halds og trausts fer á ÓL níu manna hópur fararstjóra, læknir, sjúkraþjálfari, sálfræðingur og þjálfarar keppenda. Einnig fer til Tókýó forystufólk Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og verður þar við upphaf og lok leikanna.

Morgunblaðið, mbl.is og K100 munu flytja reglulega fréttir af gangi mála í Japan en leikarnir verða að þessu sinni lágstemmdari en oft áður. sbs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert