Sigurvegarinn kom frá New York

Verðlaunahafar í skvassmóti Reykjavíkurleikanna. Frá vinstri: Jónas Heimisson, Þorbjörn Jónsson, …
Verðlaunahafar í skvassmóti Reykjavíkurleikanna. Frá vinstri: Jónas Heimisson, Þorbjörn Jónsson, Ómar Hilmarsson. Skvassfélag Reykjavíkur

Skvassmót WOW Reykjavik International Games fór fram í húsakynnum Skvassfélags Reykjavíkur um helgina. Spilað var í einum flokki að þessu sinni en það var opinn flokkur blandaður bæði konum, körlum og unglingum.

Sigurvegari mótsins var Þorbjörn Jónsson sem kom alla leið frá New York til að taka þátt. Þorbjörn sigraði Jónas Heimisson nokkuð örugglega í úrslitaleiknum 3-0. Á tímabili leit þó út fyrir að Jónas ætlaði sér að ná í sigur í einni lotu en síðasta lotan fór 11-8 fyrir Þorbirni. Í þriðja sæti var Ómar Hilmarsson sem fékk bronsleikinn gegn Matthíasi Jónssyni gefinn vegna meiðsla Matthíasar.

Nokkur myndbönd úr mótinu má finna á Youtube síðu Skvassfélags Reykjavíkur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert