Segja forsendur kjarasamninga brostnar

Kátt var í Karphúsinu þegar aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar launþega …
Kátt var í Karphúsinu þegar aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar launþega höfðu skrifað undir síðustu kjarasamninga Ómar Óskarsson

Útlit er fyrir að sú verðbólga sem nú er í kortunum verði búin að éta upp nánast alla þá 7% hækkun sem samið var um í síðustu kjarasamningum fyrir lok þessa árs. Þetta kemur fram í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka, en þar segir að ljóst sé að þetta muni auka þrýsting um að auka við samningsbundna launahækkun þegar samningar verði opnaðir í janúar til endurskoðunar. 

Núverandi samningar hljóða upp á 3,25% hækkun launa á fyrsta fjórðungi næsta árs, en sett eru skilyrði um að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabankans, gengisvísitala krónu verði 190 stig og að  kaupmáttur hafi aukist yfir þetta ár. Hverfandi líkur eru á að fyrri tvö skilyrðin verði uppfylgt.

Samkvæmt útreikningum greiningardeildarinnar mun kaupmáttaraukning yfir árið verða innan við 1% þegar staðan verður tekin í desember. Verðbólga verður um 4,4% og þá er nánast óhugsandi að krónan verði á þeim slóðum sem gert er ráð fyrir í forsendum kjarasamninga en til þess að það myndi nást þyrfti gengi krónunnar að styrkjast um 15% gagnvart helstu gjaldmiðlum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK