Langtímaatvinnuleysi eykst

Langtímaatvinnuleysi hefur aukist, þó almennt sé að birta yfir vinnumarkaðinum.
Langtímaatvinnuleysi hefur aukist, þó almennt sé að birta yfir vinnumarkaðinum. mbl.is/Ómar

Vísbendingar eru um að staða vinnumarkaðarins fari batnandi og meðal annars fer fjölda starfandi fjölgandi, en það er nú 77,1%. Hið alvarlega við atvinnuþróunina þessa dagana er að langtíma atvinnulausum er að fjölga en þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur er skilgreindir sem langtímaatvinnulausir.

Á þriðja  ársfjórðungi 2012 voru 3.300 sem höfðu verið atvinnulausir í tólf mánuði eða lengur eða 35,6% allra atvinnulausra. Á sama tíma í fyrra voru þeir 3.100 eða 29,1% atvinnulausra. Þetta kemur fram í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka. 

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands fækkaði atvinnulausum um 1.500 manns á þriðja fjórðungi ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Þá mældist atvinnuleysi á fjórðungnum 5,0% og hefur það ekki verið lægra á þriðja ársfjórðungi síðan árið 2008. Á sama ársfjórðungi í fyrra var atvinnuleysi 5,9%. Hagstofan áætlar að 9.200 manns hafi verið atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi þessa árs en til samanburðar var þessi fjöldi 10.700 á sama tíma í fyrra.

Greiningardeildin gerir ráð fyrir að atvinnuleysi haldi áfram að dragast saman á næstu misserum. Nýleg könnun Samtaka Atvinnulífsins gefi til kynna að störfum á almennum vinnumarkaði gæti fjölgað á næsta ári. Þannig segja 22% fyrirtækja sem könnunin nær til ætla að fjölga starfsfólki á næstu 12 mánuðum en 19% ætla að fækka. Langstærstur hluti fyrirtækja býst við að halda óbreyttum starfsmannafjölda á sama tímabili eða 59% fyrirtækja.  Þegar frekari útlistun á fyrirtækjunum er skoðuð kemur í ljós að fjölgun starfsmanna má vænta í iðnaði og mannvirkjagerð, ferðaþjónustu og fjármálaþjónustu en í þessum atvinnugreinum búast fleiri fyrirtæki við fjölgun starfsmanna en fækkun þeirra. 



mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK