Útboðin dugað skammt á snjóhengjuna

Snjóhengjan er um 400 milljarðar í dag.
Snjóhengjan er um 400 milljarðar í dag. mbl.is/Golli

„Ljóst er af niðurstöðum gjaldeyrisútboðanna á árinu að þau dugi skammt til þess að minnka snjóhengjuna svokölluðu, sem enn er í námunda við 400 milljarða króna, ef miðað er við krónueignir erlendra aðila í ríkistryggðum skuldabréfum og innstæðum.“ Þetta segir í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka, en næst síðasta gjaldeyrisútboð ársins fór fram í gær þar sem tilboðum var tekið fyrir 4,7 milljarða.

Í þeim sex krónukaupaútboðum sem Seðlabankinn hefur haldið á árinu hefur bankinn losað um 34,9 milljarða af aflandskrónum, en séu krónukaupaútboðin tvö í fyrra tekin með sem fóru fram í júní og júlí hefur aflandskrónustabbinn minnkað um tæpa 64 milljarða með útboðum bankans. 

Útboðin hafa þó skilað þeim árangri að finna skiptiverð á þeim aflandskrónum sem eigendurnir vilja skipta fyrir gjaldeyri sem fyrst, og má ráða af þeim að verulegur hluti aflandskrónustaflans sé þolinmóðari en svo að hann streymi út á gengi sem er í námunda við núverandi aflandsgengi.

Sú þolinmæði gæti þó litast af væntingum um að aflétting hafta geri aflandskrónueigendum kleyft að selja krónur sínar á hagstæðara gengi á komandi misserum. Eins og kunnugt er lýsti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þeirri skoðun fyrr í haust að slá þyrfti á slíkar væntingar með því að breyta lokadagsetningu haftalaganna og haga mögulegum útgönguskatti þannig að óhagstæðara verði að selja aflandskrónur eftir því sem tíminn líður. Aflandsgengið er nú á bilinu 225 til 245 krónur, það er á svipuðum slóðum og útboðsgengi Seðlabankans undanfarna mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK